Gusha pakki
Gusha pakki is backordered and will ship as soon as it is back in stock.
Couldn't load pickup availability
Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti
Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti
Við leggjum mikla áherslu á að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu og gæðavörur. Hvert skref í framleiðslu og afhendingu er unnið af kostgæfni til að tryggja ánægju og öryggi. Við erum alltaf til staðar til að aðstoða þig og svörum öllum spurningum hratt og öruggleg
Afhending og Sending
Afhending og Sending
Við sendum vörur úr lagerhúsi okkar samdægurs. Vörur pantaðar með Dropp eru afhentar samdægurs eða næsta virka dag. Ef pantað er með Póstinum má búast við afhendingu innan 1-2 virkra daga, háð staðsetningu.
Description
Description
Losaðu um spennu og bólgur í andlitinu á náttúrulegan og áhrifaríkan hátt!
Gua Sha steinninn eykur ljóma húðarinnar og bætir blóðflæði, sem stuðlar að stinnari og heilbrigðari húð. Þessi aðferð er ævaforn og hefur verið notuð í Asíu allt frá 7. öld, þar sem bæði konur og karlar uppgötvuðu krafta Gua Sha nuddsins. Með því að nota steininn reglulega geturðu minnkað þrota, bólgur og þrengjað svitaholur á sama tíma og teygjanleiki húðarinnar eykst.
Hvernig notarðu Gua Sha steininn best?
Við mælum með daglegri notkun, í um 3-5 mínútur í senn, og að nota næringaríka andlitsolíu eða serum áður en þú byrjar. Hér eru einfaldar leiðbeiningar til að fá sem mest út úr meðferðinni:
Notkun:
Enni:
- Byrjaðu í miðju enninu efst. Skiptu enninu í þrjú lárétt svæði og renndu Gua Sha steininum varlega frá miðju og út til hliðanna. Endurtaktu þessa hreyfingu niður á við fyrir hvert svæði.
Varir:
- Strjúktu yfir varirnar fram og til baka 6 sinnum til að styrkja og móta þær.
Haka og kjálki:
- Renndu steininum frá hökunni og upp að eyrnasneplinum 3 sinnum. Þessi hreyfing hjálpar til við að móta kjálkalínuna.
Brúnir:
- Nuddaðu steininum meðfram ennisbeininu, frá miðju andliti og út að eyrum.
Kinnar:
- Byrjaðu við nefið og renndu Gua Sha steininum upp kinnina og meðfram kinnbeininu í átt að eyrunum. Færðu steininn síðan neðar á kinnina og endurtaktu þessa hreyfingu. Loks skal enda með stroku frá hökunni og upp kjálkalínuna.
Háls:
- Skiptu hálsinum upp í 4-6 svæði. Það er mikilvægt að renna steininum upp hálsinn, og endurtaka hreyfinguna 5 sinnum fyrir hvert svæði.
Undir augu:
- Leggðu steininn varlega við innri augnkrókinn og renndu honum mjúklega undir augun 2 sinnum.
Þrýstingur:
- Meðferðin á að vera þægileg og án óþæginda. Hver einstaklingur finnur sinn rétta þrýsting eftir því hvað hentar húðinni þeirra best.
Gua Sha er fullkomin leið til að dekra við þig og bæta heilsu húðarinnar – einföld og áhrifarík meðferð sem getur verið hluti af daglegri rútínu!
Greiðslumátar
Greiðsluupplýsingar þínar eru meðhöndlaðar á öruggan hátt. Við geymum ekki kortaupplýsingar né höfum aðgang að kortaupplýsingum þínum.